Aglow samvera verður í kvöld, miðvikudaginn 4. mars kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Við munum fá góðan gest sem talar til okkar. Tryggvi Hjaltason ætlar að koma og vera með okkur. Hann hefur fengist við margt og hann er þekktur fyrir að hafa margar og góðar skoðanir. En undanfarin misseri hefur hann verið að skoða orð og boðskap Jesú og taka saman aðalatriðin um kristna trú.
Það verður áhugavert og spennandi að heyra í honum. JESÚS SEGIR ,,Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið “ Jóh 14.6 Einnig getum við talað um efnið og átt gott samfélag saman. Við byrjum eins og venjulega með hressingu og svo syngjum við saman og biðjum. Endilega bjóðið vinkonu með ykkur á fundinn því það sem við munum heyra er markvert. Hlökkum til að sjá sem flestar konur í kvöld.
Næstu fundir; 4. mars, 1. apríl verður Páskafundur og 6. maí er seinasti fundur vetrarins, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.