Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Sandra Erlingsdóttir. Mynd/HSÍ

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson stýrði Íslenska kvennalandsliðið í handbolta til sigurs, 28-27, gegn Svartfjallaland í þriðju umferð undankeppni EM 2026, á Ásvöllum í kvöld. Ísland er nú með tvö stig í 2.-4. sæti í riðli fjögur og Svartfjallaland fjögur stig á toppnum. 

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 13-13. Sandra Erlingsdóttir náði að jafna leikinn fyrir Ísland úr vítaskoti, áður en flautað var til hálfleiks

Ísland leiddi framan af í seinni hálfleik en þó bara með einu marki. Íslenska liðið náði þriggja marka forskoti þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Lokamínúturnar voru spennandi en Ísland náði að landa gríðarlega mikilvægum sigri. Lokatölur 28-27.

Eyjakonurnar í liði Íslands komust báðar á blað í leiknum. Fyrirliðinn Sandra Erlingsdóttir skoraði sjö mörk úr sjö skotum og Elísa Elíasdóttir eitt mark. 

Mörk Íslands: Elín Klara Þorkelsdóttir 12 mörk, Sandra Erlingsdóttir 7, Dana Björg Guðmundsdóttir 3, Lovísa Thompson 2, Elín Rósa Magnúsdóttir 2, Elísa Elíasdóttir 1, Katrín Anna Ásmundsdóttir.

Seinni leikur Íslands gegn Svartfjallalandi fer fram 8. mars, ytra kl. 16:50.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.