Hræðist mýs og rottur

Fæðingardagur: 6. apríl 1986.

Fjölskylduhagir: Kærasti minn heitir �?skar Ingvi Sigurðsson.

Foreldrar: Guðmundur Magnússon og Elva Björk Jónmundsdóttir.

Systkini: Jónas Arnþór Guðmundsson og Jónmundur Magnús Guðmundsson.

Heimili: Hússtjórnarskólin í Reykjavík.

Skólaganga: Var í grunnskóla á Kleppjárnsreykjum, stúdent frá Fsu og er í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík núna.

Helstu áhugamál: Hönnun og önnur hannyrði, lestur, útivera og vinir og vandamenn.

Uppáhaldsstaður á Íslandi: Heima hjá pabba og mömmu í Lundarreykjadalnum.

En erlendis:
Hef ferðast mjög lítið …

Hvaða hlutar í eigu þinni gætir þú síst verið án: Bílsins.

Uppáhalds listamaður: Amma og mamma.

Uppáhalds bók: Nokkrar bækur úr Ísfólksseríunni eru í miklu uppáhaldi hjá mér núna..

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: �?átturinn Sporlaust á R�?V og aðrir sakamálaþættir.

Á hvað trúir þú: Ýmislegt.

Hvað er best og hvað er verst í fari þínu: �?g er stundvís.

En í fari annarra: Heiðarleiki og hreinskilni. Versta er að fara bak við vini sína..

Ef þú þyrftir að syngja í Kareókí hvaða lag mundir þú velja: �?g er hræðilegur söngvari en ætli það yrði ekki eitthvað íslenskt og gott!

Hvað hræðistu eða veldur þér mestum kvíða: Er ógeðslega hrædd við mýs, rottur og öll slík kvikindi og að missa ástvin.

Eftirminnilegasta atvik í lífinu: Í augnablikinu er það þegar við stelpurnar tókum þátt í s-söngkeppni sem var haldin í FSu.

Eftirminnilegast úr æsku: �?að er svo margt að ég get ekki ákveðið mig.

Af hverju tekurðu þátt í fegurðarsamkeppni: Ákvað bara að eitthvað sniðugt með vinkonu minni og prófa eitthvað nýtt.

Ef ekki í samtímanum, hvenær hefðir þú helst viljað vera uppi: Á öldinni 1700-1800 í einhverri konungshirð.

Lífsmottó eða eftirlætis málsháttur: Lifðu einn dag í einu.

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.