Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) og Orka náttúrunnar (ON) hafa gert með sér samkomulag um að efna til hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi á þessu ári.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um nýtingu varmaorku sem víða finnst í formi jarðhita á Suðurlandi og býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag. Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem eru í orkunni, auka fjölbreytni í atvinnulífi með umhverfismál að leiðarljósi og vinna að nýsköpun í orkutengdri starfsemi.
Dómnefnd skipa eftirtaldir aðilar:
Gunnar �?orgeirsson, formaður SASS
Sigurður �?ór Sigurðsson, formaður Atorku
Berglind Rán �?lafsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjamarkaða ON
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri NMÍ
Albert Albertsson, stjórnarformaður Íslenska jarðvarmaklasans
Haraldur Hjaltason, ráðgjafi hjá Artemis, hefur verið ráðinn sem verkefnisstjóri og mun hann starfa með dómnefndinni. Samkeppnin sjálf verður auglýst þegar nær dregur.