Humarvertíðin, sem nú er að ljúka, hefur verið með afbrigðum góð, segja útgerðarmenn. Síðustu tvö ár hafa verið metár, segir Halldór Þorláksson, skipstjóri á Þorsteini Gíslayni sem gerir út frá Grindavík. Gott verð hefur fengist fyrir humarinn að hans sögn en í Grindavík er vertíðinni formlega lokið.
Í Þorlákshöfn, Vetstmannaeyjum og Höfn í Hornafirði er vertíðinni að mestu leyti lokið.