Í aldarfjórðung hefur Birgir Sveinsson staðið vaktina í Tvistinum sem er skyndibitastaður og sjoppa af bestu gerð. Hann byrjaði neðarlega við Heiðarveginn en flutti sig seinna ofar þar sem Faxastígur sker Heiðarveginn. Þar eru næg bílastæði, húsnæðið er rúmgott og bjart og þar mætir manni hlýlegt og vinalegt viðmót.