Í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun er farið ítarlega yfir alla tölfræði um Landeyjahöfn. Þar kemur m.a. fram að hafnarmynnið sé 90 metrar á breidd og 600 metrum utan við ferjubryggjuna. Bryggjan inni í höfninni er steypt úr forsteyptum einingum og er 70 metrar að lengd og með 10 metra og 15 metra löngum göflum. Þá er farþegaaðstaða í Landeyjahöfn 400 fermetrar og er húsið steypt með ölduformi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst