Hvers vegna kembileit fyrir brjósta- og leghálskrabbameini ?
Kembileit fyrir Brjóstakrabbameini
Árangur leitar með brjóstamyndatöku byggist einkum á því að finna krabbameinið á byrjunarstigi þar sem minni líkur eru á að dreifing æxlisvaxtar nái til eitla í holhönd og út um líkamann.
Til að sem bestur árangur náist í leitinni þurfa konur að mæta reglulega í myndatöku. �?annig er helst komið í veg fyrir að meinið nái að stækka sem eykur líkurnar á dreifingu. Auk fækkunar dauðsfalla af völdum sjúkdómsins er annar aðalávinningur hópleitar með brjóstamyndatöku sá að mun fleiri konum en ella gefst kostur á minni skurðaðgerð þ.e. fleygskurði í stað þess að allt brjóstið sé tekið.
�?ó að reglubundin brjóstamyndataka sé eina aðferðin sem hefur sannað gildi sitt til leitar að brjóstakrabbameini er hún ekki óbrigðul, auk þess sem sum mein vaxa hraðar en önnur og geta þannig komið upp milli þess sem konur fara í myndatöku. �?ví er eindregið mælt með að konur skoði sjálfar brjóst sín reglulega, helst einu sinni í mánuði, svo að greina megi áþreifanleg æxli sem fyrst.
Jafnframt verður að leggja á það áherslu að slík sjálfskoðun �?? eða skoðun hjá lækni �?? getur engan veginn komið í stað reglubundinnar myndatöku, heldur er hún aðeins til viðbótar. Liðlega helmingur þeirra brjóstakrabbameina sem greinast í hópleit reynast alls ekki áþreifanleg, og allmörg að auki svo óljós við þreifingu að þau hefðu líklega ekki fundist þannig.
Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands bíður konum 40-69 ára hópleit með brjóstamyndatöku á tveggja ára fresti. Einnig hafa allar konur sjötugar og eldri verið velkomnar í myndatöku frá upphafi, þó að þeim séu ekki send boðunarbréf.
Kembileit fyrir leghálskrabbameini.
Skipuleg leghálskrabbameinsleit Krabbameinsfélagsins hefur leitt til þess að mun færri konur en áður fá þennan sjúkdóm eða deyja úr honum. Leitin hefur því verið mikil heilsubót fyrir konur á Íslandi sem njóta þess nú að þetta er almennt ekki sjúkdómur sem ógnar heilsu þeirra eða lífi. Krabbameinsfélag Íslands boðar konur í leghálsstrok á 3ja ára fresti frá 20 ára aldri.
Leghálsstrok er einföld og óþægindalítil rannsókn sem tekur stutta stund. Skoðun á frumum sem fást með strokinu sýnir hvort þar er að finna forstigsbreytingar eða leghálskrabbamein á frumstigi. Meðferð á þessum fyrstu stigum er einföld og árangursrík og veldur konunni litlum vandkvæðum.
Árlega er boðið upp á brjóstamyndatöku og leghálskrabbameinsleit á heilsugæslustöð Vestmannaeyja auk þess sem boðið er upp á leghálskrabbameinsleit reglulega.
Viljum við hvetja allar konur til að taka þátt í kembileit fyrir brjósta- og leghálskrabbamein.
f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Unnur �?ormóðsdóttir
Hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar á Selfossi
Grein birtistg í heilsublaðið Eyjafrétta sem hægt er að lesa hérna.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.