Hvert siglir Herjólfur í dag
Herjólfur TMS IMG 8849
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
Gudni Hjoll An Bakgr

Aðsend grein

Guðni Hjörleifsson

Enn einu sinni er ófært í Landeyjahöfn vegna dýpis og Herjólfur því á leið til Þorlákshafnar. Á meðan þetta er í gangi þá bíður Álfsnesið í höfn eftir því að aðstæður verði nógu góðar svo skipið geti hafist handa við dýpkun. Þetta er gömul saga sem við Eyjamenn höfum heyrt allt of oft. Við þessar aðstæður missa jafnvel ljúfustu menn þolinmæðina. Það má því oft merkja pirring og þreytu á aðgerðarleysinu í þessum málaflokki hjá okkur Eyjamönnum og er undirritaður þar engin undantekning. Því miður hefur áhöfnin á Álfsnesinu fengið á sig óvægna gagnrýni á samfélagsmiðlum. Gagnrýni sem er oft á tíðum ósanngjörn á menn sem eru að gera sitt besta í erfiðum aðstæðum, með þau tæki sem þeir hafa í höndunum.

En þá spyrjum við okkur, afhverju þessi pirringur? Svarið er að við vitum að það eru betri kostir í boði. Fyrir nokkrum árum voru hér stærri og öflugri skip sem gátu tekið meiri sand í hverri ferð. Eitthvað sem skiptir miklu máli þegar dýpkunarglugginn er stuttur. Einnig heyrir maður af skipum sem geta dýpkað í verri aðstæðum en núverandi skip. Með þetta í huga þá ól maður þá von í brjósti að tekið yrði tillit til þessara þátta í núverandi útboði, og þá sérstaklega eftir stóran kosningafund sem haldin var í Höllinni fyrir alþingiskosningarnar þar sem öllu fögru var lofað. En því miður er raunin önnur. Enn og aftur sýnir þessi ríkisstjórn að henni er nokk sama um landsbyggðina og þessum veiðigjöldum, sem við Eyjamenn greiðum nú stóran hluta af, er skilað til okkar í formi skerðinga í stað samgöngubóta. Á þingi hefur Karl Gauti, þingmaður Miðflokksins á Suðurlandi verið duglegur að minna á Eyjarnar og þau loforð sem hafa verið brotin ásamt Sjálfstæðismönnum einstaka sinnum. Aðrir þingmenn, og þá vil ég sérstaklega nefna þá þingmenn í meirihluta sem lofuðu bót og betrun á fyrrnefndum fundi hafa þagað þunnu hljóði um öll þessi málefni. Taugarnar til okkar Eyjamanna eru ekki meiri en það.

Nú rofar aðeins til fyrir okkur Eyjamenn. Nokkrir framtakssamir aðilar hafa tekið höndum saman við að fjármagna rannsóknir á jarðlögum milli lands og Eyja. Nauðsynlegar rannsóknir svo hægt verði vonandi að hefja gangnagerð og leysa þar með samgönguvanda okkar Vestmannaeyjinga í eitt skipti fyrir öll. Enn og aftur, rannsóknir sem allir þingmenn á fyrrnefndum fundi ætluðu að berjast fyrir að færu fram. Eyjahjartað mitt tók aukaslag við þessi gleðitíðindi og vona ég innilega ég fái far með Adda Siffa í gegn um þau eftir 10 ár. Ég er gífurlega þakklátur þessum aðilum sem og þeim sem hófu þessa vinnu á sínum tíma, því þeirra hlutur í þessu öllu er mikill. Þetta er spennandi verkefni og ég vona að þingmenn Suðurkjördæmis muni allir sem einn vinna að því að ríkið komi inn í verkefnið í ríkari mæli.

En þrátt fyrir þessar gleðifréttir þá verðum við samt sem áður að lifa við Landeyjahöfn næstu 10-15 árin. Það er því mikilvægt að láta hendur standa fram úr ermum, og skapa þar aðstæður þar sem Herjólfur getur siglt til Landeyjahafnar allt árið um kring. Til þess er nauðsynlegt að við Eyjamenn eflum tengsl okkar við þingið og við þingmenn sem geta og þora að vekja upp spurningar um málefni okkar inni í þinginu.

Undirritaður er Miðflokksmaður og tilbúinn til að leggja sitt af mörkum fyrir betri Eyjar.

 

Guðni Hjörleifsson

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.