Hvert siglir Herjólfur í dag

Herjólfur TMS IMG 8849

Enn einu sinni er ófært í Landeyjahöfn vegna dýpis og Herjólfur því á leið til Þorlákshafnar. Á meðan þetta er í gangi þá bíður Álfsnesið í höfn eftir því að aðstæður verði nógu góðar svo skipið geti hafist handa við dýpkun. Þetta er gömul saga sem við Eyjamenn höfum heyrt allt of oft. Við þessar […]

Efnilegir pílukastarar láta til sín taka

Fimm ungir keppendur frá Pílufélagi Vestmannaeyja vöktu athygli á DARTUNG-móti sem haldið var í Reykjanesbæ um helgina, þar sem alls 76 keppendur tóku þátt. Fjórir þeirra náðu inn á stigalista mótaraðarinnar eftir sterka frammistöðu. DARTUNG er árleg mótaröð í pílukasti sem samanstendur af fimm mótum. Keppendur safna stigum á 12 mánaða rúllandi stigalista sem gefur […]

Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust

HBH

Sennilega hefur aldrei verið eins mikið í gangi og jafn mikil verðmætasköpun að eiga sér stað á einu atvinnusvæði á Íslandi. Nýjasta yfirlýsing um mikilvægi stórskipakants vegna fóðurframleiðslu er enn eitt dæmið. „Bent er á að uppbygging hjá Laxey, ásamt viljayfirlýsingu um að Vestmannaeyjar geti orðið þjónustuhöfn fyrir hugsanlegt úthafseldi, styrki rök fyrir því að […]

Tími til kominn að taka næsta skref

Dora Ads 2

Halldóra Kristín Ágústsdóttir hefur starfað við fasteignasölu í Vestmannaeyjum frá árinu 2021 og byggt sér upp sterka stöðu á markaðnum á þeim tíma. Nú stendur hún á tímamótum í ferlinum og hefur ákveðið að fara sjálfstætt með eigin fasteignasölu undir nafninu Eyjaeignir.  Nafnið lá beinast við  Að sögn Halldóru lá nafnið beinast við. „Ég var búin […]

Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir

Þingmaður Viðreisnar

Þegar stórar ákvarðanir eru teknar um framtíð Íslands vel ég að horfa ekki aðeins á tölur, slagorð eða skammtímapólitík. Ég horfi á börnin mín. Ég á þrjú börn, þrjú stjúpbörn og tvö barnabörn – alls átta ung líf sem munu erfa þær ákvarðanir sem við tökum í dag. Fyrir þeirra hönd vil ég vanda mig. […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.