Á Hraunbúðum eru tvö herbergi sem ætluð eru fyrir styttri innlagnir. Eðli málsins samkvæmt er fólk ekki að koma með mikið af munum heiman frá sér til að hafa hjá sér í þær 2-8 vikur sem það dvelur í þessum herbergjum. Halldóru Kristínu Ágústdóttur fannst þessi herbergi réttilega mjög kuldaleg og spurði hvort hún mætti
taka málin í sínar hendur og endurhanna þessi herbergi. Við tókum að sjálfsögðu vel í það og er afraksturinn stórglæsilegur, segir á heimasíðu
Hraunbúða.
Dóra fékk í lið með sér nokkur fyrirtæki hér í bæ sem tóku mjög vel í þessa fyrirætlun hennar og lögðu til málanna fjármagn og gjafir til að hægt væri framkvæma þessa flottu hugmynd.
Fyrirtækin eru Ísfélagið, Goodthaab, Vinnslustöðin, Geisli, Miðstöðin og BK gler. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og að sjálfsögðu færum við henni Dóru og fjölskyldu hennar innilegt þakklæti fyrir að hrinda hugmyndinni í framkvæmd og leggja á sig alla þá vinnu sem til þurfti.