Meistaraflokkur ÍBV kvenna er á fljúgandi siglingu í 1. deildinni. Í gær unnu þær ÍR-stelpur 6-0 hér í Eyjum. Að loknum 6 leikjum hefur ÍBV unnið alla sína leiki, fengið 18 stig, skorað 38 mörk og fengið á sig 2 mörk. Selfossstelpur er í 2. sæti með 15 stig eftir 5 leiki og ÍR í 3ja sæti með 12 stig eftir 7 leiki.