Eyjamenn þóttu taka stórt upp í sig í vor, þeir sögðust stefna á efri hlutann. Skrifari á heimasíðu Fram, var svo brattur að hafa nokkra trú þeim orðum Eyjamanna og spáði þeim 6. sæti. Frammistaða ÍBV hefur gert það að svartsýnisspá! – ÍBV hefur farið á kostum og er efst ásamt Blikum með 23 stig. Þeirra helsta viðbót í ár er Tryggvi Guðmundsson sem sneri heim eftir langa dvöl í FH. Eins hafa Eyjamenn verið heppnir með útlendinga, þeirra helst James Hurst, lánsmaður frá Portsmouth.