Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp hafa komið í fjármálakerfi landsins telur Sparisjóður Vestmannaeyja ástæðu til að greina frá sinni stöðu. Þetta kemur fram í viðtali Eyjafrétta við Ólaf Elísson, sparisjóðsstjóra.
„Allar innstæður í Sparisjóðnum eru tryggar. Til frekari áréttingar vísast til nýsettra laga og yfirlýsingar ríkisstjórnar Íslands um að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum hér á landi eru tryggðar að fullu með ábyrgð ríkissjóðs, sagði Ólafur.”