Ís­lenska ríkið skaðabóta­skylt gagn­vart Ísfé­laginu

Hæstirétt­ur Íslands hef­ur dæmt ís­lenska ríkið skaðabóta­skylt gagn­vart út­gerðunum Hug­in og Ísfé­lagi Vest­manna­eyja. Snýr Hæstirétt­ur þar með við sýknu­dóm­um Héraðsdóms Reykja­vík­ur. Ráðgjaf­ar- og end­ur­skoðun­ar­fyr­ir­tækið Deloitte tel­ur hagnaðarmissi fé­lag­anna nema rúm­um 2,6 millj­örðum króna, mbl.is greindi frá.

Útgerðarfé­lög­in kröfðust viður­kenn­ing­ar á skaðabóta­skyldu ís­lenska rík­is­ins vegna fjár­tjóns sem fé­lög­in töldu sig hafa orðið fyr­ir með því að fiski­skip­um þeirra hefði á grund­velli reglu­gerða verið út­hlutað minni afla­heim­ild­um á mak­ríl árin 2011 til 2014 en skylt hefði verið sam­kvæmt lög­um.

Í tveim­ur aðskild­um dóm­um Hæsta­rétt­ar, sem féllu í dag, kem­ur fram að þegar ráðherra setti sér­stak­ar regl­ur um stjórn veiða ís­lenskra skipa, á grund­velli 5. mgr. 4. gr. laga nr. 151/​1996 um fisk­veiðar utan lög­sögu Íslands, hafi gilt al­menn ákvæði lag­anna um út­hlut­un afla­heim­ilda eft­ir því sem við gæti átt nema á ann­an veg væri mælt í lög­um, en svo hefði ekki verið. Var því talið að með umþrætt­um reglu­gerðum hefði verið tek­in ákvörðun um að tak­marka heild­arafla úr mak­ríl­stofn­in­um án þess að ákv­arða afla­hlut­deild fiski­skip­anna miðað við veiðireynslu þeirra í mak­ríl. Því voru viður­kenn­ing­ar­kröf­ur út­gerðarfé­lag­anna tekn­ar til greina.

Hagnaðarmiss­ir Ísfé­lagsins var tal­inn nema um 2,3 millj­örðum króna
Í dóm­un­um kem­ur fram að út­gerðarfé­lög­in hafi farið þess á leit við Deloitte að það reiknaði út fjár­tjón vegna þess að afla­heim­ild­ir fé­lag­anna hefðu verið skert­ar með reglu­gerð.

Hagnaðarmiss­ir Ísfé­lags Vest­manna­eyja var tal­inn nema um 2,3 millj­örðum króna vegna skerðing­ar afla­heim­ild­anna sam­kvæmt niður­stöðu Deloitte. Í til­viki út­gerðarfé­lags­ins Hug­ins var hagnaðarmiss­ir­inn tal­inn vera um 365 millj­ón­ir króna. Hæstirétt­ur dæmdi út­gerðarfé­lög­un­um eng­ar bæt­ur enda voru mál­in ein­ung­is höfðuð sem viður­kenn­ing­ar­mál. Bú­ast má því við að skaðabóta­mál verði höfðuð í kjöl­far dóms­ins.

Í dómsorði er það „viður­kennt að stefndi, ís­lenska ríkið, ber skaðabóta­ábyrgð á því fjár­tjóni sem áfrýj­andi [Hug­inn ehf. og Ísfé­lag Vest­manna­eyja hf.] kann að hafa beðið […] með ákvörðunum Fiski­stofu, sem tekn­ar voru á grund­velli reglu­gerða, út­hlutað minni afla­heim­ild­um en skylt var sam­kvæmt lög­um nr. 151/​1996 um fisk­veiðar utan lög­sögu Íslands.“

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.