James Hurst hefur verið seldur frá Portsmouth til enska úrvalsdeildarfélagsins WBA. Það var Tómas Ingi Tómasson, eyjamaður og þjálfari HK, sem greindi frá þessu í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld. Hurst hefur leikið frábærlega með ÍBV í sumar en hann skoraði í kveðjuleiknum gegn Fylki um helgina.