David James verður ekki í marki Eyjamanna þegar þeir taka á móti �?órsurum í lokaumferð Pepsi-deildar karla í fótboltanum á laugardaginn. James fór meiddur af velli eftir fyrri hálfeikinn gegn Val á Hásteinsvelli á dögunum. Guðjón Orri Sigurjónsson kom í hans stað og átti frábæran síðari hálfleik, og spilaði síðan allan leikinn gegn Keflavík í næstsíðustu umferðinni. Leikurinn við Val var því kveðjuleikur James, allavega að sinni.