Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Skemmtilegur tími og mikilvægt að njóta hans 
Jason Stefánsson.

Nítján nemendur útskrifuðust úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum þann 19. desember síðastliðinn. Nemendur luku námi af sex mismunandi brautum og var útskriftinni fagnað með hátíðlegri athöfn í skólanum. Á önninni stunduðu yfir 270 nemendur nám í ólíkum námsleiðum og í fjölbreyttum áföngum. 

Meðal útskriftarnema var Jason Stefánsson, sem lauk jafnframt grunnnámi í málm- og véltæknigreinum ásamt námi við Íþróttaakademíu FÍV og ÍBV. Jason ræddi við Eyjafréttir um skólagönguna, það sem stóð upp úr og framtíðaráformin. 

Skemmtilegast við skólagönguna að hans mati var félagslegi hlutinn, samveran í kompunni og tíminn með vinunum. Hann segir að andrúmsloftið í skólanum hafi verið gott og félagslífið að sama skapi. Námslega gekk honum vel og fannst tíminn í skólanum heilt yfir góður.  

,,Það er skrítið að vera búinn með framhaldsskólann og þurfa ekki lengur að mæta á morgnanna, en á sama tíma er það líka fínt.” Jason segir taka við hjá sér að koma sér aftur í leikform í handboltanum, ásamt því að fara að vinna. 

,,Ég stefni svo á háskólanám haustið 2027 og pælingin er að fara í eitthvað tengt fjármálum, kannski hagfræði eða viðskiptafræði.” 

Þó mikið hafi verið að gera og margir boltar hafi verið á lofti tókst Jasoni nokkuð vel að finna jafnvægi í öllu því sem hann var að gera. „Það var oft mikið að gera og frítíminn takmarkaður, en mér fannst það henta vel að vera á fullu og hafa skýra rútínu. Skólinn blandaðist vel saman við annað sem ég var að sinna og þetta rúllaði einfaldlega áfram og tíminn leið hratt.“ 

Þegar tími gafst til slökunar notaði Jason þann tíma til þess að hitta vinina eða horfa á handbolta.  

En hvaða ráð myndi Jason gefa öðrum sem eru að fara hefja framhaldsskólagöngu sína? 

„Þú auðveldar þér lífið ef þú gerir hlutina af viti og nýtir tímann vel. Þetta er skemmtilegur tími og mér fannst mikilvægt að njóta hans á meðan hann stóð yfir,“ segir Jason að lokum.  

Nýjustu fréttir

Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.