Jólablað Fylkis 2017 var borið í hús í Eyjum um helgina 16.-17.des. og sent til áskrifenda. Blaðið er 24 bls. sem er sama stærð og undanfarin ár. Efni blaðsins er fjölbreytt að vanda , Séra Kristján Björnsson er með jólahugvekju, Sigurgeir Jónsson í �?órlaugargerði ræðir við við Hávarð B. Sigurðsson, Ágúst Karlsson fjallar um Aðalból í greinarflokknum Hús og fólk, Helgi Bernódusson og Gísli Pálsson fjalla um Hefnd Helgafells , Gunnhildur Hrólfsdóttir fjallar um lífshlaup �?nnu Halldórsdóttur á Eystri- Gjábakka og að lokum er �?átturinn Látnir kvaddir sem fylgt með Jólablaði Fylkis frá 1975. Forsíðumyndina tók Sæþór �?orjörnsson grafískur hönnuður hjá Eyjasýn einnig setti upp Jólablaðið, en Landsprent prentaði. Arnar Sigurmundsson annaðist umsjón með útgáfu JólaFylkis eins og mörg undanfarin ár, en Trausti Hjaltason er ábyrgðarmaður blaðsins. Jólablað Fylkis er kominn hér á útsíðu eyjafrettir.is og verður þar út janúar nk., eins og undanfarin ár.