Jólaperlur, árlegir tónleikar til styrktar Æskulýðsfélagi Landakirkju verða haldnir aftur í ár þann 20. desember kl 20:00 í Safnaðarheimili Landakirkju. Tónleikarnir voru áður auglýstir þann 19. en hafa verið fluttir vegna annara viðburða í Eyjum á sama tíma. Tónleikarnir verða með sama sniði og í fyrra en fjöldi nýrra söngvara munu koma fram ásamt Jólatríoinu og Leikhúsbandinu.