Jón og ambisjón
Í morgun ræddu þær Lóa Pind og Jóhanna Vigdís fréttir vikunnar í þættinum �??Ísland í bítið�??. �?ar komu þær meðal annars inn á orð mín um að í því árferði sem nú ríkir þurfi að hagræða betur í þágu grunnþjónustu. �?ótt ég hafi kappkostað að horfa til sem flestra liða í rekstri ríkisins (svo sem umhverfismála, utanríkisþjónustu, styrki til stjórnmálaflokka og landbúnaðarstyrkja) þá var eingöngu horft til þeirrar spurningar minnar um það hvort að við höfum efni á að reka menningarmál á þeim forsendum sem við nú gerum. Hvort við sem 320.000 manna þjóð höfum fé til að leggja rúmlega 900 milljónir til Sinfóníuhljómsveitar, 700 milljónir til þjóðleikhúss, 600 milljónir í listamannalaun og áfram má telja.
Viðkvæmt málefni
Eftir umræður vikunnar veltir maður því óneitanlega fyrir sér hvers vegna vangaveltur mínar um kostnað ríkisins vegna menninga- og lista sé svona mikið heitari og viðkvæmari umræða en nánast allir aðrir þættir í ríkisrekstri. Svo viðkvæmt er málefnið að engu er líkara en stjórnmálamenn forðist umræðuna. �?tli það sé ástæða til?
Amisjónir
Lóa Pind sagði orðrétt:
�??�?að eiginlega sló mig dálítið að hann [Elliði] skyldi vera að viðra svona skoðanir, maður sem ég reikna með að hafi �??ambisjónir�?? í landspólitík�??.
Hvað fellst í þessum orðum þessarar virtu fjölmiðlakonu. �?g efast ekki um að fjölmiðlakona sem stýrir þætti undir heitinu �??Stóru málin�?? þekkir hvað það er sem skiptir máli ef fólk ætlar að komast af í stjórnmálum í Íslandi í dag. Hverjum þarf að halda góðum og hvar nær er að beita hinum breiðu spjótum.
Ambisjónarnir og boðorðið
�?að skyldi engin halda að ég sé með þessu að hnýta í Lóu Pind fyrir að hafa orð á þessu. Hún er hin ágætasta fjölmiðlakona. Ágætis greinandi og fundvís á púlsinn. �?að slær mann hins vegar að fá þarna innsýn í hugarheim sem maður þekkir ekki. Hugarheim þeirra sem hafa �??ambisjónir�?? í landspólitík. Hugarheim ambisjónanna. Fyrsta boðorð þeirra virðist sannarlega vera �??�?ér skulið ekki hafa skoðun á því hvernig farið er með fé skattborgara þegar kemur að menningu og listum�??.
Rasskelltir apar
Staðreyndin er enda sú að fátt fer verr með ambisjónanna en átök við listamenn. Aðkoma Jóns Gnarr að borgarmálum sýndi það svo ekki varð um villst. Sannast sagna held ég að eftir hans yfirreið yfir hið pólitíska svið hugsi ambisjónarnir sig tvisvar um áður en þeir þora að gagnrýna. Sá lét þá finna til tevatnsins. Stundum fór svo að andstæðingar hans litu út eins og rasskelltir apar ef þeir fóru of bratt að honum. Fólk sem á allt sitt undir atkvæðaveiðum kærir sig lítt um slíkt. Verða svo skotspónn Spaugstofunnar, fá um sig samda limru af Hallgrími Helgasyni eða heyra að nýjasti gjörningur Sjón sé beint gegn sér. �?að vilja ambisjónarnir ekki.
Munurinn á Jóni og ambisjóni
�?á er nú gott að vera bara stór fiskur í lítilli laug. Geta haft sínar skoðanir og spurt þeirra spurninga sem maður vill. Lagt á borðið að hlutirnir séu á ákveðinn máta og velt því upp hvort að við viljum hafa þá þannig áfram. �?að er nú sennilega munurinn á því að vera Jón og ambisjón.
Beturvitrarnir
Mig langar að enda þennan pistil á orðum til þeirra sam lagt hafa mér orð í munn. �?eirra sem hafa haldið því fram að ég skilji ekki gildi menningar og telji Ísland eingöngu eiga að vera verstöð. �?eirra sem halda því fram að ég vilji leggja niður alla styrki til menningarmála og mála torgin rauð með blóði listamanna. Til allra þeirra fjölmörgu sem valið hafa að hnjóða í Vestmannaeyjar vegna minna skoðanna. �?eirra sem telja sig vitrari og betri en aðra menn. Án þess að ég eigi nokkuð sameiginlegt með meistara �?órbergi né geri orð hans að mínum þá tel ég hann í þessari tilvitnun tala til þessa fólks:
�??Flestir eru sælir í þeirri leyndu hugsun, að þeir séu vitrari og betri en aðrir menn. �?að kalla þeir fágaða siðmenningu. �?g kalla það siðmenningu varanna. �?ótt ég tali margt um ágæti verka minna, hefi ég alltaf skoðað mig aumasta smælingjann meðal hinna smæstu, mesta heimskingjann meðal hinna heimsku, versta syndarann meðal hinna breysku. �?að kalla ég siðmenningu hjartans.�?? �?órbergur �?órðarson , Bréf til Láru.
Tekið af www.ellidi.is

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.