Skemmtilegt atvik átti sér stað þegar Sighvatur Jónsson tók viðtal við Heimi Hallgrímsson á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gær. Ökumaður keyrði þá út af veginum fyrir ofan völlinn og mátti litlu muna að illa færi. Atvikið truflaði viðtalið nokkuð en Heimir hló nú bara enda fór allt vel að lokum.