Nú er skólastarf hafið á nýju skólaári og fullt af ungum íþróttaiðkendum að hefja sitt fyrsta skólaár. Það er vissulega stórt skref að byrja í skóla og því langaði Knattspyrnufélagi Rangæinga (KFR) og BúAðföngum að gefa börnunum stuttbuxur og vatnsbrúsa í tilefni af þessum merku tímamótum. Þau voru glöð í bragði krakkarnir sem tóku við gjöfunum í vikunni, hæst ánægð með lífið.