Í ljósi fréttar á íþróttamiðlinum
www.fotbolti.net vill knattspyrnuráð ÍBV ítreka þakklæti sitt til Arnórs Eyvars �?lafssonar fyrir hans framlag til knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum. Arnór Eyvar er drengur góður og á allt gott skilið frá ÍBV. �?rátt fyrir að Eyjamenn séu almennt vonsviknir með þá niðurstöðu að missa Arnór Eyvar úr sínum röðum þá eru ástæður vistaskipta hans allt aðrar en peningalegs eðlis.
Arnór Eyvar taldi sig ekki hafa tök á að leika lengur með ÍBV sökum vinnu sinnar og annarra ástæðna.
Knattspyrnuráð ÍBV biður Arnór Eyvar innilegrar afsökunar á þeim ummælum sem voru birt voru í gærkvöldi í kjölfar samtals fréttamanns við varaformann ráðsins. �?au ummæli eru engan veginn skoðun ráðsins og harmar ráðið að þau hafi verið sett fram.
Knattspyrnuráð ÍBV þakkar enn og aftur Arnóri Eyvar fyrir hans góða framlag til ÍBV og óskar honum góðs gengis á nýjum vígstöðvum.
f.h. knattspyrnuráðs ÍBV
�?skar �?rn �?lafsson