Bæjarráð Vestmannaeyja ítrekar áhyggjur sínar af stöðu mála Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. �??Í dag eins og undanfarin misseri er staðan óþolandi. Alvarlegast er að rekstur skurðdeildar er fjarri því að vera með þeim hætti sem þörf er á í Vestmannaeyjum. Fæðingaþjónusta er á sama máta svo takmörkuð að lang flest börn í þessu samfélagi fæðast nú í Reykjavík. Í því felst bæði óviðunandi hætta fyrir verðandi mæður og börn þeirra auk gríðarlegs kostnaðar og álags fyrir fjölskyldur á tíma sem að öðru leiti gæti orðið sá gleðilegasti á ævi hverrar fjölskyldu. �?vissan fyrir starfsmenn og þjónustuþega ereinnig alger,�?? segir í bókun bæjarráðs.
�?á kemur einnig fram í bókuninni að bæjarráð taki undir afstöðu heimamanna í skýrslu samráðshóps heilbrigðisráðherra og bæjarstjórnar og lýsir áhyggjum sínum af því viðhorfi sem fram kemur hjá fulltrúum ráðuneytisins. �??Verði það að veruleika verður heilbrigðis- og öldrunarþjónusta færð langt aftur fyrir það sem eðlilegt má teljast í bæjarfélagi eins og Vestmannaeyjum. Bæjarráð ítrekar þá kröfu sína að sem fyrst verði mörkuð stefna til 5 ára um lágmarksþjónustu við HSV. Tómlæti og hægagangur mun einungis gera málið enn erfiðara í úrlausn. Bæjarráð óskar eftir því að velferðarráðuneytið ljúki sem fyrst formlegri umfjöllun um skýrsluna og geri grein fyrir afstöðu og stefnu að því loknu. �?á gerir bæjarráð einnig kröfu um að velferðarnefnd fjalli um skýrsluna og móti afstöðu til innihalds hennar.�??
Andstæðir pólar í samstarfshópi
Áfangaskýrslan sem um er rætt, var kynnt í síðasta tölublaði Eyjafrétta undir fyrirsögninni Himinn og haf milli sjónarmiða heimamanna og ráðuneytis. Í úttekt Eyjafrétta segir m.a.: �??�?hætt er að segja að andstæð sjónarmið heimamanna og ráðuneytisfulltrúa í fyrrnefnda hópnum komi skýrt fram í skýrslunni enda skila þessir tveir andstæðu pólar hvor sínu áliti um marga af starfsþáttum stofnunarinnar.�??
Og í niðurlagi útttektar Eyjafrétta segir: �??Hvort heilbrigðisráðherra sé einhverju nær eftir lestur skýrslunnar er vandséð en þó ljóst að vandamálum Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja er ekki lokið með skýrslu þessari.�??