Í dag kl. 17.00 verður á kveikt á stóra jólatrénu í miðbænum. �?ar leikur Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Gunnlaugur Grettisson, forseti bæjarstjórnar flytur hátíðarávarp, Barna- og unglingakór Landakirkju syngur stjórnandi Kitty Kovác. Leikstjörnur jólaleikritsins tendrar ljós jólatrésins. Séra Kristján Björnsson sér um helgistund. Kynnir verður Birkir �?ór Högnason. �?á færir Leikfélag Vestmannaeyja og jólasveinarnir börnum góðgæti.