Í dag verður Landeyjahöfn formlega vígð en Herjólfur er nú í sinni síðustu ferð til Þorlákshafnar. Eftir fyrri ferð skipsins samkvæmt áætlun, verður siglt upp í Landeyjahöfn í fyrsta skipti. Auk boðsgesta, býðst Eyjamönnum að koma með skipinu, svo lengi sem pláss leyfir. Komið verður til baka klukkan 19:00, eftir að athöfn lýkur.