Landgangurinn við Herjólf hrundi

Nýi landgangurinn við Herjólf hrundi rétt í þessu af festingunum við afgreiðsluhúsið. Viðgerð hefur staðið yfir á landgangnum og verktaki gefið grænt ljós á notkun landgangsins. “Við vorum bara að bakka að þegar þetta gerðist. Það var umferð þarna í kring og mikil mildi að ekki fór verr,” sagði Gísli Valur Gíslason skipstjóri á Herjólfi í samtali við Eyjafréttir. Gísli sagði að skoðun stæði yfir í þessum töluðu orðum og óljóst hvert framhaldið væri.

Nýjustu fréttir

Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag
Fólk en ekki flokka
Gamla myndin: Mikli snjórinn í Eyjum í mars 1968
Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.