Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Frambjóðendurnir 14 sem gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 13. mars nk.
Liðlega 100 manns voru á fundinum í Ásgarði í dag.

Opinn kynningarfundur með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins var klukkan 11.00 í morgun í Ásgarði. Þar gafst 14 frambjóðendum, sjö körlum og sjö konum tækifæri á að kynna sig og þau mál sem þau leggja áherslu á.

Aðsókn var góð, liðlega 100 manns sem er meiri fjöldi en sést hefur í Ásgarði, húsi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í einhver ár. Eftir klofninginn í kjölfar bæjarstjórnarkosninganna 2018 er ekki annað að sjá en að nú ætli sjálfstæðismenn að standa saman í þeirri von að ná meirihluta í bæjarstjórn í kosningunum í vor.

Spurt var á fundinum hvort flokkurinn ætlaði að tefla fram bæjarstjóraefni. Skýrt kom fram að það verði ákvörðun framboðslistans að ákveða það.

Trausti Hjaltason, sem býður sig fram í fyrsta sæti listans ásamt Eyþóri Harðarsyni núverandi oddvita flokksins sagðist tilbúinn að setjast í stól bæjarstjóra næði hann góðri kosningu í fyrsta sætið.

Öll komu þau vel fyrir og ljóst að spennandi prófkjör er fram undan þann 13. mars nk. Ættu úrslit að liggja fyrir um miðnætti á föstudagskvöldið.

Þau gefa kost á sér í prófkjörinu.

Aníta Jóhannsdóttir
Ármann Halldór Jensson
Eyþór Harðarson
Guðbjörg Sól Sindradóttir
Hannes Kristinn Sigurðsson
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Jarl Sigurgeirsson
Kjartan Vídó Ólafsson
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Óskar Jósúason
Ragnheiður Lind Geirsdóttir
Rannveig Ísfjörð
Trausti Hjaltason
Þóra Guðný Arnarsdóttir

 

 

 

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.