Linda rústaði vélstjórnarglerþakið í Eyjum

„Óskandi væri að einhverjar stelpur hefðu áhuga og kjark til að skrá sig í vélfræði í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum í haust. Ég gerði að minnsta kosti mitt til að kynna fagið fyrir nemendum tíunda bekkjar grunnskólans og reyndi sérstaklega að heilla stelpurnar!“ segir Linda Petrea Georgsdóttir, starfsmaður Hafnareyrar og nýútskrifaður vélstjóri og stúdent frá FÍV. Hún braut blað í fræðslu- og atvinnusögu Vestmannaeyja með því að verða fyrst kvenna til að útskrifast sem vélstjóri frá skólanum.

Stundum er talað um að til sé „glerþak“ í samfélagi manna, ósýnileg hindrun á vegi kvenna í atvinnulífinu. Rökstuddur grunur leikur líka á að sumir karlar haldi fast í slíka hindrun til að hafa tiltekna kima á vinnumarkaði áfram út af fyrir sig.

Hafi glerþak á annað borð orðið fyrir Lindu Petreu rústaði hún það með stæl og sópaði frá sér brotunum! Pabbi hennar taldi a sínum tíma að vélfræði hentaði henni. Sjálf hafði hún ekki spáð í slíkt nám og vissi ekkert um vélfræði en sló samt til. Fljótlega kom í ljós að þarna átti Linda heima og hún blæs á hugmyndir um að vélfræðin hljóti að henta frekar körlum en konum.

„Ég hafði fyrir nokkru ákveðið að fara í framhaldsnám og helst þá að bæta við mig gráðum í Tækniskólanum í Reykjavík. Svo fór ég á námskynningar fyrir sunnan í lok febrúar og heillaðist af því sem kennarar og aðstandendur véla- og orkutæknifræði við Háskólann í Reykjavík höfðu fram að færa.

Niðurstaðan er því sú að ég pakka saman seinna í sumar og flyt suður til náms í HR. Þar tekur við nám í hálft fjórða ár og einfaldast að skýra það þannig að ég muni læra að teikna og hanna vélar.

Tíminn í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum leið hratt og allt í einu er ég útskrifuð þaðan. Það er skrítin tilfinning en um leið er ég mjög spennt fyrir því sem tekur nú við.“

Linda Petrea heitir á stelpur í Eyjum að gefa vélfræðinni gaum við námsval. Hún ruddi brautina, nú er leiðin greið og glerþakið horfið í eitt skipti fyrir öll.

• Stúdentsmyndina glæsilegu tók Þorbjörg Júlíus Ingólfsdóttir.

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.