Listar flokkanna skýrast á næstu vikum
Eins og greint hefur verið frá að þá var samþykkt röðun hjá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum fyrir næstu sveitastjóranakosningar. �?ann 24. febrúar kemur í ljós hverjir munu skipa efstu sætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. �?á velja þeir sem sæti eiga í fulltrúaráði flokksins á milli þeirra sem gefið hafa kost á sér í fimm efstu sætin. Í síðustu viku auglýsti Sjálfstæðisflokkur eftir framboði á lista til röðunar. Framboðsfrestur er til og með þriðjudaginn 20.febrúar. Tekið er á móti framboðum á skrifstofu flokksins í Ásgarði.
Nýtt og ferskt hjá E-listanum
Eyjafréttir höfðu samband við Sólveigu Adolfsdóttur forsvarsmann E-listans í Vestmannaeyjum. Hún sagðist ekki geta gefið neitt upp, �??við erum að vinna í þessu og ætlum að vanda okkur vel. Við fundum í síðustu viku og ætlum að hittast í þessari.�?? sagði Sólveig.
�??Eitt get ég sagt þér að í fyrsta skipti í mörg ár er ég virkilega sátt með það sem koma skal, það verða ný andlit og góð blanda af fólki,�?? sagði Sólveig að lokum.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.