Hafrannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson héldu bæði til loðnuleitar í gær. �?orsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofnunar, sagði að bæði skipin væru send því menn teldu að leitarsvæðið væri svo stórt að eitt skip næði ekki að komast yfir það.
Annað skipið fer vestur fyrir land og hitt austur fyrir. Ekki hefur verið skipulögð þátttaka loðnuveiðiskipa í þessum áfanga leitarinnar, enn sem komið er, en þau fáu veiðiskip sem hafa verið fyrir austan hafa fylgst með ástandinu á þeim slóðum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.