Það verður mikið um dýrðir í Höllinni á laugardaginn kemur en þá mun gleði og skemmtisveitin Vinir Vors og Blóma mæta á Eyjuna og skemmta okkur Eyjamönnum að sinn alkunnu snilld. Síðast þegar þeir voru hjá okkur var stemmning slík að elstu menn muna vart eftir jafn miklu stuði í Höllinni. Þakið ætlaði að rifna af húsinu og svitinn og hitinn var sjúkur svo mikil gleði var í mannskapnum.