Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Sigurður VE kemur að landi með fyrsta loðnufarminn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Fyrsti loðnufarmur vertíðarinnar barst til Vestmannaeyja í morgun þegar uppsjávarskipið Sigurður VE 15 lagðist að bryggju með ríflega 900 tonna afla.

Sigurður hóf veiðar í gær ásamt Heimaey VE, skammt undan Hornafirði. Sigurður fékk um 900 tonn en Heimaey um 800 tonn og er nú að landa á Þórshöfn.

„Hrognafyllingin var 12–13 prósent og hrygnuhlutfallið og stærðir loðnunnar hentugar til frystingar. Við stefnum á að frysta hverja einustu loðnu úr förmunum,“ segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins. Tvö önnur skip Ísfélagsins, Suðurey og Álsey eru á miðunum nú í morgunsárið og bindur Eyþór vonir við að veiðarnar þróist vel á næstu dögum.

Loðnan færist nú hægt og sígandi með suðurströndinni til vesturs og gæti það haft jákvæð áhrif á framhald vertíðarinnar. Veðurspáin ætti einnig að vera veiðum hagstæð um helgina. Sigurður kastaði þrisvar sinnum í túrnum. Fyrsta kastið var prufukast sem gaf um 20 tonn, en næstu köst voru mun stærri – um 500 tonn annars vegar og 400 tonn hins vegar.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var viðstaddur þegar Sigurður VE kom til hafnar í morgun og tók meðfylgjandi myndir.

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.