Á laugardaginn fer fram fyrsta torfærukeppnin í Íslandsmótinu. Mótið verður haldið í Vestmannaeyjum og hefst keppni kl. 13:30 austur á Nýja hrauni. Bílarnir fara í gegnum sex brautir og má búast við að keppnin standi eitthvað fram eftir degi. Alls eru 23 bílar skráðir til keppni, sem gerir mótið eina af stærstu torfærukeppnum sem haldnar hafa verið hér á landi í nokkurn tíma.