Mælanlegur árangur af átakinu
visit_vestmannaeyjar_is_ads
Ferðamálasamtök Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabær og Herjólfur ohf. fóru í markaðssetningarátak undir slagorðinu Visit Vestmannaeyjar.

Hann er athyglisverður árangurinn af samstarfi Ferðamálasamtakana, Vestmannaeyjabæjar og Herjólfs ohf. í markaðssetningu Vestmannaeyja sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.

88 þúsund fleiri farþegar

Þetta samstarf hófst árið 2021 í heimsfaraldri. Herjólfur flutti að meðaltali á árunum 2016 til 2019, 343 þúsund farþega. Á síðasta ári var fjöldinn 431 þúsund farþegar. Sem er fjölgun um 88 þúsund farþega. Ef reiknað er með fullu fargjaldi á hvern farþega skilar þetta um 211 milljónum til Herjólfs ohf. Þá eru aðrar tekjur af farþegum, eins og veitingasala og flutningur á bifreiðum ekki reiknaðar inn.

Tekjuaukning um 48 milljónir

Eldheimar eru sannarlega glæsileg umgjörð um merkilegan þátt í sögu Vestmannaeyja og var að sjálfsögðu umtalsverð fjárfesting á sínum tíma sem hugsuð var fyrir ferðaþjónustu. Nú er færast verulegur vöxtur í aðsókn að safninu. Árlegar tekjur Eldheima voru að meðaltali á árunum 2016-2019 um 76 milljónir en voru á síðasta ári 124 milljónir sem er tekjuaukning upp á 48 milljónir.

Tekjur - Eldheimar - 2014-2023 - línurit
Heimild/Vestmannaeyjabær

Markaðssetning að sanna gildi sitt

Bara þessir tveir þættir sem tilheyra rekstri Vestmannaeyjabæjar eru þá hugsanlega að skila um 260 milljónum í hærri tekjum á síðasta ári til samfélagsins, sem hægt er að þakka góðri markaðssetningu. Þá eru ótalin tekjuhækkun Sagnheima og íþróttamiðstöðvarinnar af rekstri sundlaugarinnar sem örugglega njóta aukins fjölda ferðamanna.

herj_farthegar_2014-2023_linurit
Heimild: Herjólfur ohf./Eimskip
skjar_leifsstod_visit_vestmannaeyjar
Hluti af átakinu var að kynna Vestmannaeyjar í Leifsstöð. Eyjar.net/TMS

https://eyjar.net/yfir-430-000-med-herjolfi-i-fyrra/

 

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.