Magnús Kristinsson hefur fjárfest í Kviku banka. Félagið Q44, sem Magnúsog fjölskyldu eiga í gegnum Fjárfestingarfélagið Blik ehf., gekk nýlega frá kaupum á 1,25 prósenta hlut í fjárfestingabankanum. Eftir kaupin er félagið fimmtándi stærsti hluthafi Kviku.
Magnús var áður eigandi og framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum. Allt hlutafé fyrirtækisins var selt til Síldarvinnslunnar árið 2012 og þá lét Magnús af störfum sem framkvæmdastjóri Bergs-Hugins.
Hægt er að lesa meira
hérna í frétt frá vísi.is