Margrét Eir og Páll Rósinkranz munu koma fram á tónleikum á Háaloftinu á morgun, föstudag. Á tónleikunum taka þau lög af nýjum disk þeirra, If I needed you en á disknum eru þekkt amerísk þjóðlög sem þau, ásamt hljómsveitinni Thin Jim, hafa sett í nýjan búning.
Tónlistarunnendur þekkja vel til þeirra Margrétar Eirar og Páls Rósinkranz en bæði eiga þau að baki langan og farsælan feril í íslensku tónlistarlífi. Hljómsveitina Thin Jim skipa þeir Jökull Jörgensen, Andrés �?ór Gunnlaugsson, Kjartan Guðnason og Davíð Sigurgeirsson.
�??Við hlökkum mikið til að koma til Eyja. �?að er orðið nokkuð síðan ég kom að skemmta en ég kom reyndar til Eyja í sumar,�?? sagði Margrét í samtali við Eyjafréttir. �??Diskurinn okkar er að koma til landsins á fimmtudag og við munum taka hann með okkur til Eyja. Við munum auðvitað kynna hann, taka lögin sem á honum eru en laumum einnig öðrum lögum með.�??
Hvernig tónlist er þetta?
�??�?etta eru amerísk þjóðlög og lög sem eru í þeim klassa, svona bluegrass country fílingur, svo ég sletti nú almennilega. �?að eru tólf lög á diskinum en eitt lagið kemur tvisvar fyrir, annars vegar á ensku og svo íslensku. Jökull bassaleikari semur mikið af textum og hann hristi þetta fram úr erminni.�??
Margrét segir að hún og Páll hafi reglulega komið fram en ekki unnið eins mikið saman og nú. �??Við höfum gengið með þessa hugmynd bæði í nokkur ár en það var ekki fyrr en í sumar sem við létum verða að því að koma saman og taka upp. Við höfum verið að kynna nýja diskinn, erum búin að halda þrenna tónleika en alls munum við halda sex tónleika. Svo hlakka ég líka mikið til að kynnast nýja staðnum, Háaloftinu því þangað hef ég ekki komið áður,�?? sagði Margrét Eir að lokum.