Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í stórsigri íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu en liðið lék gegn Eistlandi ytra í dag. Lokatölur urðu 0:5 Íslandi í vil en þetta var síðasti leikur liðsins í undankeppni HM. Ísland hefur lokið leik, liðið endaði í öðru sæti riðilsins á eftir Frökkum sem fara í umspil um fjögur laus sæti í lokakeppni HM.