Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, yfirleitt kallaður Binni í Vinnslustöðinni, segir að hefði hér verið veiðigjald, eins og gerð er tillaga um í nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra, þá hefði verið bullandi tap á íslenskri útgerð á árunum 2000-2010, að báðum árunum meðtöldum. Hann kveðst standa við orð sín um að til standi að þjóðnýta útgerðina með skattlagningu.