Nemendum boðið á sundnámskeið
Yngstu nemendum verður boðið á námskeið.

Eins og flestu Eyjafólki er kunnugt hefur sundlaugin í Vestmannaeyjum verið lokuð í nokkra mánuði vegna viðgerða sem hafa dregist á langinn. Af þeim sökum hafa grunnskólanemendur ekki getað stundað hefðbundið skólasund í vetur. Í stað hefðbundinnar kennslu hafa nemendur þurft að nýta vaðlaug utandyra, sem þykir ekki fullnægjandi lausn.

Til að bregðast við stöðunni hefur verið ákveðið að bjóða nemendum á yngsta stigi, 1.-4. bekk, upp á sundnámskeið í apríl. Tölvupóstur þess efnis var sendur til foreldra og forráðamanna barna á yngsta stigi í gær.

Nemendur munu fá að minnsta kosti sex skipti með sundþjálfara og fara tímarnir fram að loknum skóladegi.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.