Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR

Kvennalið ÍBV í handbolta sigraði ÍR örugglega, 33-25, í næst síðustu umferð Olís deildar kvenna í Eyjum í kvöld. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með og var staðan 5-4 Eyjakonum í hag, eftir tíu mínútur. Þegar stundarfjórðungur var liðinn byrjuðu Eyjakonur hægt og rólega að auka forskot sitt og náðu þriggja marka forystu, […]

Nemendum boðið á sundnámskeið

Eins og flestu Eyjafólki er kunnugt hefur sundlaugin í Vestmannaeyjum verið lokuð í nokkra mánuði vegna viðgerða sem hafa dregist á langinn. Af þeim sökum hafa grunnskólanemendur ekki getað stundað hefðbundið skólasund í vetur. Í stað hefðbundinnar kennslu hafa nemendur þurft að nýta vaðlaug utandyra, sem þykir ekki fullnægjandi lausn. Til að bregðast við stöðunni […]

Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Ólíklegt er að hægt verði að ráðast í dýpkun í Landeyjahöfn á næstu dögum vegna óhagstæðrar veðurspár og mikilla lægða sem ganga nú yfir landið. Þetta segir Sólveig Gísladóttir, starfsmaður Vegagerðarinnar. Hún bendir á að skilyrði fyrir dýpkun séu að ölduhæð megi ekki fara yfir 1,5 metra og þurfa slík skilyrði að haldast í nokkra […]

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs

Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar hafa undanfarna daga tekið þátt í Seafood Expo North America í Boston, stærstu sjávarútvegssýningu Norður-Ameríku, sem fram fór dagana 15.–17. mars í Thomas M. Menino Convention & Exhibition Center. Á sýningunni koma saman þúsundir kaupenda, birgja og sérfræðinga víðs vegar að úr heiminum. Í ár spannar viðburðurinn um 20.000 fermetra sýningarrými og taka […]

Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega

Í kæru sem lögð hefur verið fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja eru einnig gerðar athugasemdir við hvernig útboðsskilmálar hafi breyst frá fyrra útboði. Kærendur telja að nýju útboðsgögnin byggi á verulega breyttum forsendum og að önnur atriði vegi nú þyngra í mati tilboða en áður. Þeir benda […]

ÍBV tekur á móti ÍR

ÍBV tekur á móti ÍR í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld klukkan 18:00 í næst síðustu umferð Olísdeildar kvenna í handbolta. Þrátt fyrir að Eyjakonur hafi þegar tryggt sér annað sætið í deildinni er nóg undir þegar litið er til komandi úrslitakeppni. ÍBV hefur átt gott tímabil og situr öruggt í öðru sæti með 30 stig […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.