Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Kostnaður við hugmyndir listamannsins um minnisvarða á Eldfelli var eignfærður í bókum Vestmannaeyjabæjar árið 2024. Myndin er úr kynningu listamannsins og sýnir stíginn áður en gengið er upp bratta hlíðina. Athygli vekur að myndin hefur verið unnin, meðal annars með því að fjarlægja ruslahauga og veg hægra megin til að fegra ásýnd svæðisins.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Í upphafi árs fjölluðu Eyjafréttir um eignfærðan lögfræðikostnað Vestmannaeyjabæjar sem vakti spurningar í kjölfar fyrirspurna blaðamanns. Misræmi milli ​afhen​dra gagna og upplýsinga úr opnu bókhaldi bæjarins nam um 20 milljónum króna í lögfræðikostnaði. Sá kostnaður hafði ekki verið gjaldfærður heldur eignfærður í bókum bæjarins.

Síðar kom fram í samskiptum við bæinn að umræddur kostnaður tengdist undirbúningsvinnu vegna neysluvatnslagnar 4 og einnig vegna skemmda á vatnslögn 3.

Eyjafréttir ályktuðu í fyrri umfjöllun að kostnaðurinn kynni að tengjast deilu bæjarins við Vinnslustöðina um ábyrgð á skemmdum á vatnslögn 3, en um var að ræða umtalsverðan kostnað frá lögmannsstofunni Logos á árinu 2024.

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað – Eyjafréttir 

Bærinn óskaði eftir leiðréttingu

Eftir birtingu fréttarinnar í janúar óskuðu bæjaryfirvöld eftir leiðréttingu. Ritstjórn Eyjafrétta taldi kröfuna óskýra og óskaði eftir frekari gögnum og rökstuðningi, meðal annars til að skýra á hvaða forsendum lögfræðikostnaður hefði verið eignfærður. Óskað var eftir afritum af ​öllum lögfræðireikningum ​á tímabilinu sem til umfjöllunar var.

44 dagar án gagna

Eyjafréttir óskuðu fyrst eftir gögnum þann 31. janúar síðastliðinn. Þrettán dögum síðar bárust svör þess efnis að beiðnin væri of umfangsmikil og að afmarka þyrfti hana.

Í kjölfarið var beiðnin afmörkuð, en tíu dagar liðu þar til svar barst. Ný beiðni var send viku síðar og 16. mars barst svar, tólf dögum síðar, sem reyndist ekki innihalda þau gögn sem óskað hafði verið eftir.

Málið hefur því verið til meðferðar hjá Vestmannaeyjabæ í um sex vikur án þess að umbeðin gögn hafi verið afhent.

Eyjafréttir hafa á undanförnum misserum átt í sambærilegum málum við stjórnvöld​ (ráðuneyti og bæjaryfirvöld) vegna aðgangs að upplýsingum og hefur úrskurðarnefnd um upplýsingamál í ​þeim tilvikum fallist á kröfur miðilsins.

Fleiri dæmi um eignfærslur

Eyjafréttir fjölluðu nýlega um drög að ársreikningi Vestmannaeyjabæjar þar sem fram kom að bærinn hafði tekjufært 208 milljóna króna bótagreiðslu frá tryggingafélagi vegna skemmda á vatnslögn. Þar sem bærinn hafði ekki lagt út sambærilega fjárhæð vegna framkvæmda myndaði tekjufærslan verulegan hagnað í bókum bæjarins.

 

Þá h​afa bæ​jaryfirvöld einnig eignfært kostnað vegna hugmyndavinnu Ólafs Elíassonar vegna minnisvarða á Eldfelli. Sá kostnaður nam alls 100 milljónum króna, þar af 50 milljónum frá bænum og 50 milljónum frá ríkinu.

Slík meðferð kostnaðar vekur spurningar um hvaða viðmið liggja að baki eignfærslu og hvernig kostnaður er flokkaður í bókhaldi bæjarins.

Enn beðið eftir svörum

Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og afmarkanir liggja umbeðin gögn enn ekki fyrir. Á meðan standa spurningar eftir um umfang og eðli lögfræðikostnaðar bæjarins og á hvaða forsendum hluti hans hefur verið færður sem eign í stað gjalda.

 

 

 


Eyjafréttir standa vaktina

Eyjafréttir hafa undanfarið unnið að því að greina fjárhag Vestmannaeyjabæjar, þar á meðal afkomu, stöðu hitaveitusjóðs og aðra lykilþætti í rekstri bæjarins.

Hver er staða hitaveitusjóðsins? – Eyjafréttir 

Hafnarsjóður rýrnar í höndum bæjarins – Eyjafréttir 

Versnandi afkoma bæjarins – Eyjafréttir 

Eignfærslur eru veigamikill þáttur í slíkri greiningu. Hvort kostnaður er gjaldfærður eða eignfærður getur haft veruleg áhrif á afkomu og stöðu sveitarfélagsins í bókhaldi.

Umfjöllun af þessu tagi krefst tíma og vinnu. Hún er unnin fyrir lesendur og áskrifendur Eyjafrétta.

Áskrift kostar frá 1.000 kr. á mánuði.
Með áskrift styður þú sjálfstæða og staðbundna blaðamennsku​.

 

Áskrift – Eyjafréttir 

Nýjustu fréttir

Herjólfur til Þorlákshafnar
„Fjölskyldan fullyrðir að ég sé að verða níræður“ – Svabbi býður til afmælisveislu
Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  
Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.