Mjög hlýtt var í júlímánuði, sérstaklega síðustu 10 dagana, og voru þá hitamet slegin víða um land, m.a. á Þingvöllum, að því er fram kemur í yfirliti frá Veðurstofu Íslands.
Góðviðrasamt var í mánuðinum og mældist meðalhitinn í Reykjavík 12,5 stig og er það 1,9 stigum ofan meðallags. Mánuðurinn er í hópi hlýrri júlímánaða, lenti í 7. sæti frá upphafi samfelldra mælinga 1871. Lítillega hlýrra var í júlí í fyrra og júlímánuður 1991 var nokkru hlýrri en nú.