Net festist í skrúfu Herjólfs í Vestmannaeyjahöfn í gærkvöldi svo drepa þurfti á annarri vél skipsins. Rafmagn fór af skipinu um tíma en það sigldi áfram á hálfu afli. Til öryggis óskaði skipstjóri Herjólfs eftir aðstoð frá hafnsögubátnum Lóðsinum við að leggjast að bryggju.