Framkvæmda- og hafnarráð hélt fund sl. föstudag í fundarherbergi Siglingastofnunar í Kópavogi. Á fundinum fóru Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs, og Jón Bernódusson skipaverkfræðingur hjá Siglingastofnun, yfir niðurstöður mælinga og úttektar Siglingastofnunar á notagildi leiðar tvö varðandi endurbætur á upptökumannvirkjum Vestmannaeyjahafnar. Í máli þeirra kom fram að leið tvö er fullkomlega fær til að lyfta þeirri skipastærð í Eyjaflotanum og er skýrsla vegna úttektarinnar væntanleg á næstu dögum.