Ár hvert halda Eyverjar búningaball fyrir yngri kynslóðina á �?rettándanum þar sem keppt er um hver er í besta búningnum. Að þessu sinni stóð Nói Bjarnason uppi sem sigurvegari en hann var maður í búri og er hugmyndin komin frá smáforritinu Minecraft. Nói er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni
Nafn: Nói Bjarnason.
Fæðingardagur: 18. október 2008.
Fæðingarstaður: Odense, Danmörku.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Tinna Tómasdóttir, pabbi minn heitir Bjarni �?lafur Marinósson, systur mínar tvær heita Emelía �?gn og Sara Björk.
Uppáhalds vefsíða: www.youtube.com.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: �?egar það er sungið afmælissönginn.
Aðaláhugamál: Byggja úr Lego með mínum hugmyndum.
Uppáhalds app: Minecraft.
Hvað óttastu: Hvirfilbyl.
Mottó í lífinu: Að vera hjálpsamur og góður.
Apple eða Android: Apple.
Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Leonardo da Vinci.
Hvaða bók lastu síðast: Jólasyrpa.
Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Messi, Dagur Arnarsson frændi minn og ÍBV.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja hreyfingu: �?g labba eiginlega alltaf heim úr skólanum.
Uppáhaldssjónvarpsefni: �?vintýramyndir.
Hvað finnst þér skemmtilegast við �?rettándann: Að fara á grímuballið, hitta Tröllin í göngunni og vera púki.
Í hvaða búningi varstu á ballinu og hvers vegna: �?g var maður í búri sem Steve úr Minecraft hélt á út af því að mér finnst Minecraft skemmtileg og pabbi fann þessa hugmynd.
Bjóstu við því að sigra búningakeppnina: �?g bjóst alveg við því út af búningnum og vonaðist mikið til þess.