Í gær var ný álma á Hraunbúðum vígð við hátíðlega athöfn. Byggingin er mikið fagnaðarefni en hún býður uppá stórbætta aðstöðu og rými fyrir einstaklinga sem þurfa sérhæfða þjónustu. Fullt var út úr dyrum á þessum gleðidegi og margir aðilar sem lögðust á eitt til að láta þetta verða að veruleika. Nánr verður fjallað um nýju álmuna og málefni aldraðra í næsta tölublaði Eyjafrétta.