Nýja Vestmannaey komin út úr húsi

Hin nýja Vestmannaey var tekin út úr húsi í morgun, máluð og fín. Skipið er smíðað í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. Notaður er vagn til að færa skipið út úr húsinu og mun hann flytja það út á pramma. Pramminn verður síðan dreginn út og fjörð og þar verður honum sökkt undan skipinu. Gert er ráð fyrir að Vestmannaey muni fljóta í fyrramálið.

Guðmundur Alfreðsson útgerðarstjóri Bergs-Hugins er í Aukra og fylgist grannt með. Hann segir að mönnum lítist afar vel á Vestmannaey og brosi allan hringinn. Þá segir hann að gert sé ráð fyrir að vélar skipsins verði gangsettar 4. eða 5. maí.

Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey, er einnig í smíðum í Aukra og er ráðgert að það verði sjósett í ágúst nk. Skipin eru tæplega 29 metrar að lengd og 12 metra breið og há. Sumir segja að þessi skip séu stór-lítil.

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.