Fyrir um tveimur vikum eyðilagðist lampinn í sneiðmyndatækinu á Sjúkrahúsinu. Er það mikið áfall því frá því tækið var tekið í notkun í september 2007 hefur um 800 sjúklingum verið rennt í gegn að meðaltali á ári. Á meðan tækið er bilað þarf að senda fólk sem þarf að komast í sneiðmyndatöku til Reykjavíkur.